| Nordic Seating Composium 2026
Ráðstefnan sem við höfum öll beðið eftir er snúin aftur!
Eftir nokkurra ára hlé er loksins komið að því að halda Nordic Seating Symposium á ný. Þetta er viðburður sem enginn ætti að missa af, sérstaklega ekki þau sem vinna með einstaklingum, sem nota hjólastóla og /eða glíma við setstöðuvanda.
Um er að ræða tveggja daga viðburð þar sem farið er yfir nýjustu rannsóknir á flóknum setvanda, rætt um mikilvægi forvarna, öryggi, hagnýtar lausnir og panel umræður. Fyrirlesarar verða frá Norðurlöndum, Bretlandi og Bandaríkjum. Aðaltungumál ráðstefnunnar verður enska.
Dagsetning: 10.–11. nóvember 2026
Staðsetning: Scandic Star Sollentuna, Stokkhólmi
Bókaðu fyrir 15. apríl 2026 til að tryggja hótelherbergi á ráðstefnustaðnum. Þú færð bókunarkóða fyrir hótelið þegar þú skráir þig á ráðstefnuna. |