Ráðstefna framundan!

1. apríl 2026

Nordic Seating Composium 2026

Ráðstefnan sem við höfum öll beðið eftir er snúin aftur!

Eftir nokkurra ára hlé er loksins komið að því að halda Nordic Seating Symposium á ný. Þetta er viðburður sem enginn ætti að missa af, sérstaklega ekki þau sem vinna með einstaklingum, sem nota hjólastóla og /eða glíma við setstöðuvanda.

Um er að ræða tveggja daga viðburð þar sem farið er yfir nýjustu rannsóknir á flóknum setvanda, rætt um mikilvægi forvarna, öryggi,  hagnýtar lausnir og panel umræður. Fyrirlesarar verða frá Norðurlöndum, Bretlandi og Bandaríkjum. Aðaltungumál ráðstefnunnar verður enska.

Dagsetning: 10.–11. nóvember 2026

Staðsetning: Scandic Star Sollentuna, Stokkhólmi

Bókaðu fyrir 15. apríl 2026 til að tryggja hótelherbergi á ráðstefnustaðnum. Þú færð bókunarkóða fyrir hótelið þegar þú skráir þig á ráðstefnuna.

Frekari upplýsingar

 

 

Nýjustu fréttirnar