Sundlaug
Sundlaug
Sundlaug Endurhæfingar-þekkingarseturs var byggð árið 1983, sérstaklega fyrir fatlað fólk og með þarfir fatlaðs fólks í huga. Laugin var byggð fyrir tilstuðlan og með aðkomu Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis. Búningsaðstaða var endurnýjuð árið 1989. Búningsklefar eru rúmgóðir og í / eða við búningsklefa, og við laug, eru til staðar lyftarar, 3 baðbekkir, sérstakir baðstólar og sundlaugalyftari.
Laugin er notuð til vatnsþjálfunar fyrir þá einstaklinga sem fá þjálfun hjá Endurhæfingu-þekkingarsetri og ennfremur fyrir fullorðnar fatlaða einstaklinga sem fá þjálfunartíma sem snúa að vellíðan í vatni hjá Fjölmennt fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks.
Laugin er 6 x 11 metrar, um 0,9 m þar sem hún er grynnst og 1,4 m þar sem hún er dýpst. Hitastigi er haldið u.þ.b. 34,5°C og heitur pottur er um 38,5° – 39° C. Lofthiti er að jafnaði 27°C.
Við laugina er sundlaugarlyftari, 4 hækkanlegir/ lækkanlegir baðbekkir, 1 rafknúinn setlyftari og 4 sérstakir baðstólar á hjólum. Í búningsklefum er öll aðstaða með þarfir fatlaðs fólks í huga, m.a. hitalampar fyrir þá sem ekki geta hreyft sig og baðstóll fyrir fólk í ofþyngd.
Þjálfun í vatni
Vatnsþjálfun býður upp á öflugan endurhæfingar- og meðferðarkost fyrir einstaklinga með fjölþættar skerðingar, bæði börn og fullorðna. Vatnsþjálfun getur innihaldið þol og styrktaræfingar, jafnvægisæfingar, vatnsaðlögun, slökun og teygjumeðferð. Hún hefur marga kosti fram yfir þjálfun á þurru landi. Náttúrulegur flotkraftur vatnsins gefur frelsi til hreyfinga án þess að hætta sé á að lagt sé of mikið álag á líkamann. Mótstaða vatnsins styrkir vöðva og einstakir eiginleikar vatnsins lágmarka verki og auðvelda hreyfingu. Enn fremur líður flestum mjög vel í heitu vatni. Flotkraftur léttir álagi af liðum og því getur fólk með stirða eða kreppta liði hreyft sig mun auðveldar en hægt er á “þurru landi”.
Aðstaða í sundlaug
- Búningsklefar eru tveir. Þeir eru rúmgóðir og í eða við búningsklefa eru til staðar lyftari, baðbekkir og sturtustólar.
- Lyftari er við laug til að flytja fólk í liggjandi stöðu..
- Í búningsklefum er boðið upp á sápu, einnota hanska og einnota þvottasvampa.
- Þjónustunotendur koma sjálfir með sín eigin baðföt, handklæði og sjampó ef þeir kjósa.
- Ekki er boðið upp á aðstoð í búningsklefum og koma því notendur með sinn eigin aðstoðarmann ef þess er þörf.
Öryggismál sundlaugar
Við sundlaugarbakka er snúra sem tengd er við öryggishnapp.
Í búningsklefum eru öryggishnappar. Þeir eru staðsettir á vegg sem snýr út að gangi fyrir framan búningsklefa. Þessa hnappa á ekki að nota nema um neyðartilfelli sé að ræða.
Nauðsynlegt er að fylgjast með hitastigi við heitan pott. Hitamælir hangir á tréverki við pottinn. Vinsamlega látið starfsfólk vita ef hitastig er óeðlilegt. Viðmiðunarhitastig er 38, 5°C en má vera á bilinu 37, 5 – 39, 5°C.
Aldrei má neinn vera án eftirlits í eða við laug.
Umgengni við sundlaugina
Við leggjum áherslu á góða umgengni og hreinlæti en grunnreglan er að skilja við baðklefa og tæki eins og maður vildi koma að hlutunum sjálfur.
Neyðaráætlun í sundlaug Endurhæfingar
Verði alvarlegt slys eða komi upp neyðartilfelli í eða við sundlaugina skulu starfsmenn bregðast við á eftirfarandi hátt:
Ef tveir starfsmenn eru til staðar:
- Starfsmaður 1 hefur þegar björgunaraðgerðir ef þeirra er þörf, sjá blað um endurlífgun Starfsmaður 2: 1. Aðstoðar starfsmann 1, ef þarf að ná einstaklingi upp úr laug og saman koma þeir honum þannig fyrir að hægt sé að hefja aðgerðir.
- Aðvarar aðra starfsmenn ( hringir neyðarbjöllu) 2: 1. Aðstoðar starfsmann 1, ef þarf að ná einstaklingi upp úr laug og saman koma þeir honum. þannig fyrir að hægt sé að hefja aðgerðir. 2. Aðvarar aðra starfsmenn ( hringir neyðarbjöllu).
- Kannar aðstæður og kallar til sjúkrabíl í 112.
- Segir hvaðan hringt er / hvar slysið er: Segir hver hringir; Hvað kom fyrir.
- Hefur stjórn á sundlaugargestum – Rýmir svæðið.
- Aðstoðar starfsmann nr. 1 við björgunaraðgerðir.
- Tekur á móti sjúkrabíl.
Ef einn starfsmaður er til staðar:
- Aðvarar aðra starfsmenn ( hringir neyðarbjöllu).
- Hefur strax björgunaraðgerðir.
- Felur ákveðnum aðila að kalla í sjúkrabíl í síma 112.
- Sá aðili skal: Segja hvaðan hringt er/hvar slysið er; Segja hver hringir; Hvað kom fyrir.
- Felur ákveðnum aðila að hafa stjórn á sundlaugargestum/rýma húsnæðið.
- Felur ákveðnum aðila að taka á móti sjúkrabíl.
- Staðsetning á öryggis- og neyðarútbúnaði í sjúkraþjálfun og sundlaug
Endurhæfingar í Kópavogi:
- Neyðarbjalla -Staðsett á súlu við miðja sundlaug. Þegar togað er í spottann, hringir bjalla í húsnæði sjúkraþjálfunar.
- Neyðarhnappar -Í búningsklefum í vesturálmu staðsettir á vegg sem liggur að gangi.
- Ambupoki og kokrenna -Staðsett á hillu fyrir framan lyftu í sjúkraþjálfun.
- Súrefni -Staðsett í litlu geymslu við hlið lyftunnar uppi í sjúkraþjálfun.
- Sogtæki -Staðsett á móti litlu geymslu (undir símtæki) uppi í sjúkraþjálfun Pokar, millistykki og sogleggir eru í litlu geymslu ef það er ekki á sogtækisborðinu.